15.10.2015 Afmælishátíð – Verzlunarskóli Íslands 110 ára Haldið verður upp á 110 ára afmæli skólans föstudaginn næstkomandi. Kennt verður samkvæmt hraðatöflu fyrstu þrjá tímana og hefst dagskráin á Marmaranum kl. 11:00. Afmælishátíð 16. október Dagskrá hefst á Marmara kl. 11:00 Skólastjóri býður gesti velkomna Skemmtiatriði frá nemendum Jón Jónsson og Friðrik Dór mæta með lag sérstaklega samið í tilefni 110 ára afmælis Myndasýning úr skólalífi áranna 2012 – 2015 á töflunum í kringum Marmarann Veitingar í boði skólans og sérmerktar derhúfur seldar til styrktar bleiku slaufunni Fínn föstudagur – nemendur og starfsfólk mætir spariklætt í skólann