Brautskráning

Brautskráning stúdenta frá Verzlunarskólanum fór fram laugardaginn 27. maí við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. Að þessu sinni brautskráðust 264 nýstúdentar frá Verzlunarskólanum, 259 úr dagskóla og 5 úr fjarnámi. Útskriftarhópurinn samanstóð af 163 stúlkum og 101 pilti.

Dúx skólans var Katarina Kekic með I. ágætiseinkunn; 9,23. Hlaut hún bókagjafir og námsstyrk að upphæð 500.000.

Semidúxarnir voru tveir að þessu sinni en það voru þau Ernir Jónsson og Andrea Helga Guðnadóttir með I. ágætiseinkunn 9,2 og hlutu þau bókagjafir og námsstyrk að upphæð 250.000.

Aðrir nemendur  með I. ágætiseinkunn fengu einnig bókagjafir og námsstyrk að upphæð 150.000 kr. og voru það eftirfarandi nemendur:

 Nafn Bekkur  Einkunn
 Daníel Þór Guðmundsson  6-X  9,1
 Brynhildur Helga Samúelsdóttir  6-S  9,1
 Ragnhildur Hjartardóttir  6-S  9,1

Að vanda var úthlutað úr VÍ 100 sjóðnum en hann var stofnaður í tilefni af aldarafmæli skólans. Fyrrverandi nemendur skólans lögðu fé í sjóðinn og í skipulagsskrá fyrir sjóðinn segir m.a. að árlega skuli hann styrkja valda nemendur með fjárframlagi, þegar þeir flytjast milli bekkja eða ljúka stúdentsprófi. Skal við það miðað að styrkþegar hafi sýnt afburða námsárangur eða lagt verulega af mörkum til skólastarfsins með þátttöku í félagslífi o.þ.h. Sjóðstjórn komst að þeirri niðurstöðu að veita verðlaun fyrir besta námsárangur í 1. bekk, 2. bekk og í 5. bekk og voru það eftirfarandi nemendur:

Nafn  Bekkur Einkunn
 Amanda Lind Davíðsdóttir 1-V  9,5
 Guðjón Ari Logason  1-D  9,5
 Íris Brynja Helgadóttir  2-R  9,7
 Bjarni Ármann Atlason  5-X  9,8

Skólinn óskar öllum brautskráðum nemendum skólans innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.

 

Aðrar fréttir