Brautskráning Norður-Atlantshafsbekkjarins

Norður-Atlantshafsbekkurinn (NGK) lauk lokaári sínu í Sisimiut á Grænlandi með brautskráningu, þriðjudaginn 16. júní. Glæsilegur hópur átta íslenskra nemenda var meðal útskriftarnemenda; Baldur Smárason, Baldvin Hrannar, Eldey Hrefna Helgadóttir, Emma Birgisdóttir, Hanna Sigríður Jónsdóttir, Maralene Rós Villareal Bold, Matthías Guðni Elínarson og Þórdís Ólöf Kristjándóttir. Þau stóðu sig með miklum ágætum og hafa verið verðugir fulltrúar Íslands í þessu einstaka samvinnuverkefni fjögurra skóla í jafnmörgum löndum. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju.

Með þessari útskrift hefur annar hópurinn klárað þá ævintýralegu vegferð sem námið í Norður – Atlantshafsbekknum er. 15 nemendur voru í bekknum sem var að útskrifast en þau dvöldu fyrsta árið sitt í Gribskov í Danmörku. Annað námsárið skiptist í tvennt, annars vegar haustönn í Færeyjum og hins vegar í Verzló á vorönn. Lokanámsárið er svo á Grænlandi. Önnin í Verzló var sérlega ánægjuleg og gaman að hafa þennan merkilega nemendahóp hjá okkur og kynnast þeim vel.

Nemendur bekkjarins eru einstaklega samheldin hópur og hafa tekið út mikinn þroska á vegferð sinni. Námið gekk mjög vel hjá þeim og það voru stoltir nemendur sem tóku við skírteinum sínum við hátíðlega athöfn í Sisimiut á Grænlandi.

Aðrar fréttir