Enskukennarar sækja IATEFL ráðstefnuna í Brighton

Enskukennarar við skólann sækja um þessar mundir IATEFL, eina stærstu og virtustu ráðstefnu sem haldin er á sviði enskukennslu. Ráðstefnan, sem nú er haldin í Brighton, laðar að sér þúsundir kennara og fræðimanna frá yfir 100 löndum og á dagskránni eru nokkur hundruð fyrirlestrar og málstofur. Þátttaka kennaranna á ráðstefnunni er mikilvæg fyrir faglega þróun þeirra. Þar fá þeir tækifæri til að kynna sér nýjustu strauma í tungumálakennslu og afla sér hagnýtra verkfæra sem nýtast beint í kennslustofunni.

Aðrar fréttir