Ferð nemenda til Sankti Pétursborgar í valgreininni Rússland: Saga og menning

 

54 nemendur í valgreininni Rússland: Saga og menning, fóru í fimm daga vettvangsferð til Sankti Pétursborgar á dögunum 12. til 17. október. Rússneska utanríkisráðuneytið og utanríkismálaskrifstofa Sankti Pétursborgar var hópnum innan handar og greiddu götu hans í ferðinni. Fararstjórar og skipuleggjendur ferðarinnar voru þau Bessí Jóhannsdóttir, Hallur Örn Jónsson og Jón Ingvar Kjaran.

Flogið var til Helskinki þann 12. október og síðan var farið þaðan í rútu til Pétursborgar. Dagurinn eftir var tekinn snemma og heimsóttu nemendur tvo háskóla, annars vegar Tækni- og hönnunarháskólann og hins vegar Menningar- og listaháskólann. Þar hlýddu nemendur á fyrirlestra um menningu og listir og sögu Pétursborgar. Í millitíðinni var kirkja heilags Ísaks heimsótt. Góður rómur var gerður að fyrirlestrunum og spurðu nemendur fyrirlesara fjölda spurninga og náðu að tengja viðfangsefnið vel við námsefni áfangans.

Þann 14. október var svo Vetrarhöllin og Hermitage-safnið heimsótt. Fengu nemendur þar ágætis kynningu á höllinni og sögu hennar. Ennfremur voru vel valin málverk af þeim 3 millj. verka sem safnið hefur að geyma skoðuð og kynnt nemendum. Því næst var virki Péturs og Páls heimsótt og samnefnd kirkja en þar eru Rómanóvarnir grafnir. Um kvöldið fór stór hluti hópsins á ballettinn Öskubusku eftir Prókófiev í hinu fræga óperuhúsi borgarinnar, Marinskí.

Þann 15. október, var farið út fyrir borgina, allaleið til þorpsins Pushkin sem er í um 30 km utan við Sankti Pétursborg. Þar var sumaraðsetur Rómanóvanna og var ein af höllum þeirra heimsótt þar, Katrínarhöllin. Nemendur voru leiddir um bygginguna og fengu góða leiðsögn um sögu hallarinnar. Þegar aftur var komið til Pétursborgar var farið með hópinn á markað rétt við Blóðkirkjuna. Þar gerðu margir nemendur góð kaup.

Pétursborg var svo kvödd með söknuði þann 16. október og farið í rútu aftur til Helsinki. Þangað var komið seint um kvöld og kom hópurinn sér fyrir á gistiheimili í miðborg borgarinnar. Eftir það tóku fararstjórar hópinn í stutta kvöldgöngu um borgina þar sem vel valdar byggingar voru skoðaðar. Daginn eftir var svo farið í flug heim til Íslands og komið þangað seinni part dags. Má segja að ferðin hafi heppnast mjög vel og voru  nemendur og kennarar ánægðir með ferðina.

"Nemendur

 Ánægður nemendahópur ferðarinnar
(smella til að fá stærri mynd)

Aðrar fréttir