12.03.2026 Fimm nemendur úr 2-B í nemendaheimsókn til Frederiksberg HF Í þessari viku eru fimm stelpur úr 2-B í heimsókn hjá nemendum í Frederiksberg HF í Kaupmannahöfn. Með í för eru Anna Hrund Másdóttir, myndlistarkennari, og Katrín Jónsdóttir, dönskukennari. Nemendurnir vinna að sameiginlegu listaverki með dönsku nemendunum. Í gær fékk hópurinn leiðsögn um Kaupmannahöfn þar sem nemendurnir skissuðu umhverfið á nokkrum stöðum, meðal annars í Bibliotekshaven, við Cirkelbroen sem Ólafur Elíasson hannaði, við Óperuna og á Islands Brygge þar sem sendiráð Íslands er til húsa. Í dag vinnur hópurinn áfram með skissurnar og sauma þær saman í sameiginlegan dúk. Vinnan með dúkinn heldur svo áfram á Íslandi þegar dönsku nemendurnir koma í heimsókn til Íslands dagana 6.–11. apríl. Auk vinnunnar með dönsku nemendunum hafa þær heimsótt listasafnið Copenhagen Contemporary þar sem þær sáu meðal annars verkið Aftershock eftir James Turrell. Á morgun fara þær í Louisiana-safnið þar sem þær taka þátt í vinnustofu eftir leiðsögn um safnið. Stelpurnar eru búnar að vera Verzlunarskólanum til mikils sóma og hafa dönsku kennararnir hælt þeim í hástert. Það fara glaðar stelpur heim á laugardaginn eftir velheppnaða listaferð.