28.08.2026 Fimm nýstúdentar frá Verzlunarskólanum Föstudaginn 21. ágúst útskrifuðust fimm nemendur með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands. Það eru þau Eva Björg Logadóttir, Hanna Lára Tryggvadóttir, Jakob Christensen Lund, Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir og Valdimar Porca. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri, Hanna Lára Tryggvadóttir, Eva Björg Logadóttir, Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir og Hólmfríður Knútsdóttir, kennslustjóri fjarnáms.