15.04.2026 Fjör í frönsku! Myndbandskeppni framhaldsskólanema Í marsmánuði er hátíð franskrar tungu haldin hátíðleg um allan heim og af því tilefni var haldin um helgina hin árlega frönskukeppni grunn- og framhaldsskóla í Veröld – húsi Vigdísar. Keppnin var haldin í samvinnu Félags frönskukennara á Íslandi, Sendiráðs Frakklands á Íslandi og Alliance française á Íslandi. Fyrstu verðlaun voru sérlega vegleg í ár en sigurvegararnir fengu vikunámskeið í frönkum málaskóla í Rouen. Nemendur frá Verzlunarskóla Íslands stóðu sig einstaklega vel og hrepptu þrjú efstu sætin. Þema keppninnar í ár var „Fjör í frönsku“. verðlaun hlutu Sigrún Eva Ingólfsdóttir 2.B og Sigurrós Soffía Daðadóttir 2.B 2. verðlaun hlutu Hrafnkell Tími Thoroddsen 2.B og Jón Kristófer Ólason 2.F 3. verðlaun hlaut Arnheiður Helgadóttir 2.B Hugmyndin í ár var að tengja keppnina við átakið „Franska er málið“ og nemendur áttu því að útbúa stutt myndband sem verður dreift á samfélagsmiðlum til að „auglýsa“ frönsku með efni sem höfðar til ungmenna og mikilvægi þess að kunna og læra frönsku. Verzlunarskóli Íslands óskar vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn!