Frönkunemendur á ferð til Angers og Parísar

Dagana 19. til 27. september fór 30 manna nemendahópur á 2. ári, ásamt tveimur kennurum til borgarinnar Angers sem er í Loire dalnum í Frakklandi. Dvöldu nemendur, sem öll eru með frönsku sem 3. mál, hjá frönskum fjölskyldum og kynntust við það frönskum háttum, siðum og venjum.Einstaklega vel var tekið á móti hópnum og munum við endurgjalda gestrisnina þegar frönsku ungmennin koma til Íslands í mars 2027.

Auk þess að sitja í tímum í franska menntaskólanum, heimsótti hópurinn Château d‘Angers sem er kastali sem reistur var á 9. öld og hefur að geyma veggteppi sem komust á heimsminjaská UNESCO árið 2023. Farið var í sigling á ánni Maine og fræðst um náttúru, sögu og fuglalíf.

Einnig fór hópurinn til Nantes og heimsótti þar musée des Illusion og einnig fórum við í Les Machines de l‘Île sem er ein þekktasta ferðamannaperla Nantes. Þetta er lista-, tækni- og skemmtisafn þar sem risastór vélræn dýr og furðuverk lifna við. Hugmyndin sækir innblástur í sögur Jules Verne, uppfinningar Leonardo da Vinci og iðnaðarsögu Nantes.

Eftir dvölina í Angers fór hópurinn til Parísar þar sem dvalið var á farfuglaheimili í 4. hverfi borgarinnar, gengið var um Mýrina, farið upp að Sacré Cœur og þaðan gengið að Place du Tertre og niður Montmartre hæðina. Að auki heimsóttum við Louvre og fórum að Eiffelturninum og Notre Dames og sendiherra Íslands í París, María Mjöll Jónsdóttir bauð hópnum heim til sín í morgunhressingu og fræddi hópinn um samskipti Frakklands og Íslands.

Ferðin heppnaðist einstaklega vel og var nemendum bæði lærdómsrík og fræðandi. Nemendur voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

Aðrar fréttir