07.01.2021 Full staðkennsla í næstu viku Frá og með mánudeginum 11. janúar verða allir tímar stundatöflu kenndir í staðnámi í skólanum. Þar sem allir árgangar eru að koma í skólann á sama tíma er mikilvægt að nemendur noti þá innganga sem þeirra heimastofa hefur fengið úthlutað. (sjá frétt ) Þá hvetjum við nemendur til að koma með nesti til að minnka sem mest umferð á göngum skólans og við innganga. Vefverslun Matbúðar fer í loftið í næstu viku og verður kynnt fyrir ykkur sérstaklega. Við minnum á að samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra um skólahald er grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra á milli aðila. Þetta á við í öllum kennslustofum skólans og á göngum hans. Íþróttakennsla verður áfram í formi útikennslu og hafa nemendur fengið upplýsingar um fyrirkomulagið frá sínum kennara. Við gerum okkur öll grein fyrir því að COVID-19 er ekki búið og enn eru smit í samfélaginu okkar. Stöndum saman og sinnum persónubundnum sóttvörnum með það að leiðarljósi að skólahald geti haldið áfram í staðnámi á þessari önn. Þá ítrekum við að þeir sem finna fyrir einhverjum einkennum haldi sig heima og fari í sýnatöku. Við hlökkum til að sjá ykkur í skólanum, alla daga, allan daginn. Skólastjórnendur