20.03.2026 Fyrrum nemendur heimsækja skólann Á dögunum fékk skólinn ánægjulega heimsókn frá fyrrum nemendum sem útskrifuðust sem stúdentar árið 1980. Hópurinn kom saman til að rifja upp skólaárin og sjá hvernig skólinn hefur þróast í gegnum tíðina. Gestirnir fengu leiðsögn um skólann þar sem þeir skoðuðu meðal annars kennslustofur, fyrirlestrasali og íþróttaaðstöðu nemenda. Á veggjum skólans eru útskriftarmyndir frá fyrri árum og var sérstaklega gaman þegar hópurinn fann sína mynd og rifjaði upp minningar frá skólatímanum. Þá fannst hópnum einnig áhugavert að sjá eldri kennslutæki á borð við ritvélar og rafreikna sem minntu á fyrri tíma. Á bókasafni skólans hafði verið tekið saman efni frá skólaárum hópsins, þar á meðal gömul eintök af Verslunarskólablaðinu og Viljanum, sem gestir nutu þess að skoða. Skólinn þakkar hópnum kærlega fyrir komuna og ánægjulega samveru. Fyrrum nemendur sem útskrifuðust árið 1980 ásamt Gunnari Sigurðssyni, kerfisstjóra, sem sá um leiðsögn um skólann.