Fyrrverandi nemandi VÍ fékk styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ

Á þriðjudaginn síðastliðinn tók fyrrverandi nemandi Verzlunarskólans, Alexander K. Bendtsen, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.

Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum.

Verzlunarskólinn óskar honum til hamingju.

Aðrar fréttir