30.04.2026 Glæsilegur árangur nemenda á Uppskeruhátíð Ungra frumkvöðla 2026 Nemendur Verzlunarskóla Íslands náðu glæsilegum árangri á Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla sem fram fór í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Fyrirtækið Þekktu landið!, sem samanstendur af fimm nemendum skólans – Petru Björk Valdimarsdóttur, Thelmu Kristbjörgu Bæringsdóttur, Heru Björt Aðalsteinsdóttur, Tinnu Björgu Jóhannsdóttur og Hönnu Falksdóttur Krüger – hlaut aðalverðlaun keppninnar, Fyrirtæki ársins 2026. Fyrirtækið, Þekktu landið! hefur þróað fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á að þekkja staðsetningu þekktra staða á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina leik og lærdóm og efla þekkingu á landinu á lifandi og skemmtilegan hátt. Með sigrinum mun fyrirtækið keppa fyrir hönd Íslands á Evrópukeppni ungra frumkvöðla, GEN_E 2026, sem haldin verður í Riga dagana 7.–10. júlí. Nemendur Verzlunarskólans stóðu sig einnig afar vel í öðrum flokkum: 2. sæti – Fyrirtæki ársins: Grásíða Samfélagsleg nýsköpun: Hugljómi Umhverfisvænasta lausnin: Land Skólinn óskar vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn!