Greindu betur: Tvö efstu sæti framhaldsskólaflokksins til Verzlunarskóla Íslands

Nemendur frá Verzlunarskóla Íslands náðu glæsilegum árangri í landskeppninni Greindu betur 2026, þar sem þeir hlutu bæði fyrsta og annað sæti í flokki framhaldsskóla.

Í fyrsta sæti var liðið Refirnir, skipað þeim Jóni Þór Sanne (1-J) og Hákoni Bjarnari Eiríkssyni (1-F), með verkefnið Þróun húsnæðismarkaðar á 21. öldinni.
Í öðru sæti var liðið Janym2026, skipað þeim Guðmundi Ými Guðmundssyni (1-Y) og Janniku Jónsdóttur (1-Y), með verkefnið Hvert er samband raforkunotkunar og hagvaxtar?

Greindu betur er árleg landskeppni í gagna- og upplýsingalæsi sem haldin er af Hagstofa Íslands með stuðningi frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Liðin Refirnir og Janym2026 hafa með árangri sínum tryggt sér þátttökurétt í Evrópsku tölfræðikeppninni.

Keppnin miðar að því að efla hæfni ungs fólks til að vinna með gögn, túlka upplýsingar og beita gagnrýninni hugsun við ákvarðanatöku.

Verzlunarskóli Íslands óskar vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn!

Aðrar fréttir