Harry Potter val í London

Hin árlega ferð nemenda í Harry Potter vali var farinn seinni hluta október. Nemendur kynntu sér helstu kennileiti Lundúnaborgar, heimsóttu British Museum og fóru í áhugaverðan göngutúr um tökuslóðir kvikmyndanna um Harry Potter. Hápunktur ferðarinnar var heimsókn í Warner Brothers Studios þar sem myndverunum sem notaðar voru í tökur myndanna hefur verið breytt í magnað safn um gerð þeirra. Þar má sjá margvíslegar furðuverur, kynnast hvernig unnið er með gervi og hversu ótrúlega mikil vinna liggur á bak við hvert smáatriði í svona myndum. Þannig er þetta ekki bara lærdómur í furðufræðum Potterheimsins heldur gefur þetta líka innsýn í magnaðan heim nútímakvikmyndagerðar.  Undir lok ferðarinnar þurftu nokkrir nemendur að nýta sér færna í varnarlistum gegn myrkraöflum þegar nokkrir ungir galdramenn veittust að þeim með árásargöldrum eins og sjá má má myndunum. Kennarar og fararstjórar í ferðinni voru enskukennararnir Ármann Halldórsson, Daði Pálsson og Rebekka Árnadóttir.

Aðrar fréttir