Héðinn Unnsteinsson ræðir geðheilbrigði við nemendur

Héðinn Unnsteinsson heimsótti nýverið nemendur á 2. ári í lífsleikni og hélt erindi um geðheilbrigði.

Með hlýju og hreinskilni ræddi hann við nemendur um Lífsorðin 14 og fengu þeir innsýn í mikilvægi þess að huga að andlegri heilsu. Héðinn hefur verið ötull talsmaður geðheilbrigðismála og haldið fjölmörg erindi um efnið. Auk þess færði hann bókasafni skólans nokkur eintök af bók sinni Vertu úlfur, sem byggir á hans eigin reynslu og hefur vakið mikla athygli.

Verzlunarskóli Íslands þakkar honum kærlega fyrir komuna.

Aðrar fréttir