04.12.2009 Hlynur Þór Sigurðsson Hlynur Þór Sigurðsson, nemandi í 5-X, verður jarðsunginn í dag. Hlynur Þór var einstaklega ljúfur og góður drengur. Hann stundaði nám sitt af mikilli kostgæfni og var öðrum nemendum góð fyrirmynd í framkomu, námsárangri og vináttu. Það hefur komið berlega í ljós undanfarna daga hve hlýlega allir, sem þekktu hann, hugsa til hans. Það var bæði sorglegt og aðdáunarvert að sjá nemendur og starfsmenn skólans sýna samhug sinn til fjölskyldunnar í verki með því að rita í minningarbók um Hlyn Þór sem lá hér frammi í skólanum og hafði verið útbúin af bekkjarfélögum hans og vinum. Það var linnulaus röð við bókina frá morgni til lokunar. Við skiljum ekki ástæðuna fyrir því að hann var tekinn frá okkur en erum þakklát fyrir að hafa kynnst svona heilsteyptum ungum manni. Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu Hlyns Þórs. Verzlunarskóli Íslands sendir aðstandendum hans og vinum innilegar samúðarkveðjur. Minningin um fyrirmyndardreng mun lifa. Ljóð samið í minningu Hlyns Þórs: Elsku besti vinur frá okkur hvarfstu skjótt skildir okkur eftir í aldimmri nótt. En dagur nóttina nemur og með bros þitt þú kemur; eilíft í okkar hjarta býr myndin af vininum bjarta. Tómas Hrafn Ágústsson bekkjarfélagi Hlyns í 5-X