Hönnunarsamkeppni

Vilt þú setja þinn svip á Versló?

Nú er efnt til hönnunarsamkeppni þar sem nemendur eru hvattir til að hanna veggspjald fyrir samskiptasáttmála skólans.

Markmiðið er að setja sáttmálann fram á fallegan, skýran og aðgengilegan hátt þannig að hann verði bæði eftirtektarverður og auðveldur aflestrar.

Allir nemendur geta tekið þátt og hver og einn má senda inn eins margar tillögur og hann vill. Þetta er frábært tækifæri til að sýna sköpunargáfu og hönnunarhæfileika og eiga um leið þátt í að gera samskiptasáttmála Versló sýnilegri í skólasamfélaginu.

Glæsileg verðlaun

Sigurvegarinn hlýtur 20.000 króna inneign í Kringlunni og fær auk þess að bjóða öllum bekknum sínum í bíó.

Skilafrestur

Skilafrestur er til og með 16. október 2026.

Skila skal veggspjaldinu á PDF-formi á netfangið

honnunarsamkeppni@verslo.is
.

Samskiptasáttmáli Verzlunarskóla Íslands

Virðing

Við sýnum hvert öðru virðingu, bæði með orðum og framkomu.

Öryggi

Við tökum þátt í að búa til umhverfi þar sem við finnum öryggi til að spyrja spurninga, tjá okkur og læra af mistökum.

Jákvæðni

Við hrósum og hvetjum hvert annað áfram. Við tökum eftir og tölum um það sem vel er gert.

Vellíðan

Við sköpum umhverfi þar sem öllum getur liðið vel og fá að vera þau sjálf.

Traust

Við erum heiðarleg og einlæg í samskiptum, virðum mörk hvors annars og dæmum ekki.

Ábyrgð

Við berum ábyrgð á eigin hegðun og veljum hvernig við bregðumst við umhverfi okkar.

Láttu sköpunargáfuna njóta sín!

Við hlökkum til að sjá tillögurnar.

Aðrar fréttir