Íslenskukennari

Verzlunarskóli Íslands auglýsir stöðu íslenskukennara.

Hæfnikröfur:

  • Háskólapróf í viðkomandi grein.
  • Kennsluréttindi.
  • Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur.

Við bjóðum:

  • Góða vinnuaðstöðu.
  • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri.

Umsóknarfrestur er til 24. nóvember og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is

Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1120 nemendur. Skólinn er bekkjaskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.

Aðrar fréttir