Jarðfræðiferð um Reykjanesið

Náttúrufræðibekkir á 1. ári fara árlega í jarðfræðiferð um Reykjanesið og fá þar tækifæri til að upplifa íslenska eldfjallanáttúru í bakgarðinum.

Ferðin er mikilvægur hluti af náminu þar sem nemendur fá að sjá með eigin augum það sem þeir hafa lært um jarðfræði landsins. Hún er líka skemmtilegt uppbrot á skóladeginum.

Fyrsta stoppið var við Reykjanestá þar sem ólgumikill sjór og óvenju hlýr vindur tóku á móti hópnum. Það var tilkomumikið að sjá hvernig sjórinn mótar ströndina og kastar til steinhnullungum í fjörunni.

Þar sem spáin gerði ráð fyrir rigningu seinnipartinn var jarðfræðin að mestu skoðuð á Reykjanesi, meðal annars við Gunnuhver og Valahnjúk. Síðan var haldið til Grindavíkur og ummerki eftir jarðhræringarnar skoðuð.

Þá tók að rigna og því gerð tvö stutt stopp við Krýsuvík áður en haldið var aftur í Verzlunarskólann.

Aðrar fréttir