04.10.2020 Kennt í fjarkennslu á morgun, 5. okt. Þar sem enn ríkir nokkur óvissa um endanlega útfærslu á því hvernig framhaldsskólum er heimilt að starfa samkvæmt hertum sóttvarnarreglum, hefur ákvörðun verið tekin að kennsla í Verzlunarskólanum mun öll fara fram í fjarnámi á morgun mánudag. Kennt verður samkvæmt stundaskrá. Nánari upplýsingar um framhaldið verða gefnar út á morgun.