Kveðja frá Verzlunarskóla Íslands

Ólöf Kjaran Knudsen
Ólöf Kjaran Knudsen hóf störf við Verzlunarskóla Íslands haustið 1982 og kenndi hér lengst af þýsku. Ólöf var farsæl í starfi, hafði einlægan áhuga á nemendum sínum og velferð þeirra og lagði sig fram um að mæta þeim af hlýju og virðingu. Hún hafði góða nærveru, var traust í störfum sínum og naut virðingar og væntumþykju bæði nemenda og samstarfsfólks. 

Listrænir hæfileikar Ólafar voru miklir og myndlistin skipaði ávallt mikilvægan sess í lífi hennar. Árið 1993 tók hún sér leyfi frá kennslu til að leggja stund á myndlistarnám og sneri aftur til starfa við Verzlunarskólann haustið 1996. Á síðari hluta starfsævinnar fékk hún tækifæri til að sameina kennarastarfið og listsköpunina þegar hún hóf að kenna myndlist sem valgrein. Sá áfangi markaði tímamót í sögu skólans, enda var þar um að ræða fyrsta eiginlega listgreinaáfangann sem boðið var upp á við Verzlunarskólann. Með því ruddi Ólöf að vissu leyti brautina fyrir listgreinar innan skóla þar sem áherslan hafði lengst af verið á önnur svið. 

Ólöf lét af störfum við Verzlunarskólann haustið 2012 eftir 30 ára starf. Hún var góður og traustur samstarfsmaður og setti mark sitt á skólasamfélagið með hlýlegri nærveru sinni, fagmennsku og listrænum hæfileikum. Við sem áttum þess kost að starfa með henni minnumst hennar með hlýhug og þakklæti. 

Við vottum fjölskyldu Ólafar samúð okkar, sérstaklega Unni, dóttur hennar, sem starfaði við skólann í mörg ár.  

Fyrir hönd starfsmanna Verzlunarskóla Íslands,

Guðrún Inga Sívertsen og Þorkell Diego.

Aðrar fréttir