Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema

Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 20:00 í húsakynnum skólans (Bláa sal).

Á fundinum verður kynning á skólastarfinu, náminu, foreldrafélaginu og félagslífi nemenda. Eftir dagskrá í Bláa sal verður forráðamönnum boðið að hitta umsjónarkennara. Hér er ekki um einstaklingsviðtöl að ræða heldur hitta umsjónarkennarar hvers bekkjar alla forráðamenn samtímis.

Stjórnendur skólans og námsráðgjafi verða til taks á Marmaranum og svara spurningum.

Aðrar fréttir