13.11.2026 Leikhúsupplifun – Salka Valka í Borgarnesi Nemendur á 3. ári fóru í vikunni á sýninguna Salka – ástin og dauðinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Leikhúsferðin er í tengslum við lestur á Sölku Vöku eftir Halldór Laxness lesa í íslenskuáfanga. Góður rómur var gerður að sýningunni sem skrifuð er og leikin af Unni Ösp Stefánsdóttur. Í spjalli við nemendur á undan sýningunni útskýrði Unnur Ösp að velja þyrfti og hafna þegar leikverk er samið upp úr skáldsögu. Í leikgerð sinni leggur Unnur áherslu á mæðgurnar Sölku Völku og Sigurlínu, samband þeirra og samskipti við karlmenn. Fjallað er um ofbeldið sem þær mæðgur þurfa að þola sem endurspeglar veika stöðu kvenna snemma á 20. öldinni. Þá vakti Unnur Ösp athygli krakkanna á því hve sérstakt það væri að Halldór hefði verið litlu eldri en þau sjálf þegar hann samdi söguna, 28 ára gamall. Nokkur ár eru síðan Halldór Laxness hefur verið lesinn í Verzlunarskólanum. Þá voru það oftast Íslandsklukkan og Sjálfstætt fólk sem urðu fyrir valinu. Það sem Salka Valka hefur umfram þau ágætu verk er að söguhetjan, Salka Valka, er á aldur við nemendur sjálfa. Við fylgjumst með henni takast á við áskoranir lífsins og nýjar tilfinningar sem tengjast ástinni, ofbeldi og réttlátu samfélagi. „Mér finnst þetta geðveikt, þetta er upplifun!“ heyrðist einn nemandi segja við annan í hléi. Sömu viðbrögð mátti skynja í lok sýningar þegar nemendur hylltu Unni Ösp með lófaklappi, hrópi og köllum.