Líf og fjör í nýnemavikunni

Það er skemmtileg stemning í skólanum þessa dagana þar sem nýnemavikan stendur nú sem hæst. Það er óhætt að segja að nýnemavikan sé frábær leið til að kynnast, mynda ný vinatengsl og skapa skemmtilegar minningar. Nýnemar hafa verið hvattir til að taka þátt í fjölbreyttum þemadögum sem hafa sett líflegan svip á skólastarfið þessa vikuna.

Að venju fer fram stigakeppni milli bekkjanna þar sem nemendur takast á við alls kyns skemmtilegar áskoranir. Meðal verkefna í ár voru að fá sér kaffibolla á kennarastofunni, biðja kennara um meira heimanám, uppestur fyrir starfsfólk bókasafnsins og hrósa starfsfólki mötuneytisins.

Nýnemar hafa einnig verið á fullu að skreyta stofurnar sínar og þar hafa bekkirnir svo sannarlega fengið að láta hugmyndaflugið og sköpunargáfuna njóta sín.

Það hefur ekki síður verið líflegt á Marmaranum en þar hafa nýnemar meðal annars spreytt sig í kappáti og tannkremsglímu.

Vikunni lýkur með nýnemaferð á föstudaginn en þá fellur kennsla niður hjá nýnemum eftir hádegi. Skipulagning vikunnar er í höndum Skemmtó sem hefur lagt mikla vinnu í að gera hana sem skemmtilegasta og eftirminnilegasta fyrir nýnemana.

Það er því nóg um að vera í Verzló þessa dagana og gaman að fylgjast með nýnemunum taka þátt í fjörinu, kynnast hvert öðru betur og koma sér vel fyrir í nýjum skóla.

Aðrar fréttir