Listasöguferð til Ítalíu

Dagana 18. til 23. október fóru nemendur á 3. ári á lista- og nýsköpunarbraut ásamt nemendum í listasöguvali í árlega námsferð til Ítalíu.

Ferðin hófst í Róm þar sem farið var í Páfahöllina, Sixtínsku kapelluna, Panþeonhofið, Jesúítakirkjuna og Galleria Borghese. Þaðan var lest tekin til Flórens þar sem hópurinn fór í hið frábæra Uffizi listasafn sem hefur að geyma mörg af helstu verkum endurreisnarinnar, s.s. fæðingu Venusar og La Primavera eftir listamanninn Botticelli.

Einnig var Bargellosafnið heimsótt sem og Galleria Accademia sem hýsir Davíðsstyttu Michelangelos. Loks fór hluti hópsins upp í hvelfingu dómkirkju borgarinnar sem er eitt helsta byggingarfræðilegt undur sögunnar.

Óhætt er að segja að ferðin hafi heppnast einkar vel og að það hafi verið þreyttur en glaður hópur sem kom aftur heim að ferð lokinni.

Aðrar fréttir