Litli háskóladagurinn haldinn á Marmaranum

Mikill áhugi var á Litla háskóladeginum sem haldinn var á Marmaranum í gær, þar sem útskriftarnemendur og nemendur á öðru ári fengu tækifæri til að kynna sér fjölbreytta möguleika í áframhaldandi námi.

Á staðnum voru fulltrúar háskóla og annarra menntastofnana sem kynntu ólíkar námsleiðir og veittu m.a. upplýsingar um inntökuskilyrði og námsfyrirkomulag. Nemendur sýndu mikinn áhuga, spurðu spurninga og áttu góð samtöl um framtíðaráform sín.

Verzlunarskólinn þakkar öllum þeim sem tóku þátt í deginum og lögðu sitt af mörkum til að gera Litla háskóladaginn vel heppnaðan.

Aðrar fréttir