Lok innritunar 2025

Innritun í Verzlunarskólann fyrir komandi skólaár er lokið.

Alls bárust 890 umsóknir, 621 sem val 1 en í samanburði voru þær 522 fyrir ári síðan.
Innritaðir voru 388 nemendur frá  67 grunnskólum víðs vegar af landinu og er þessi hópur nýnema sá stærsti sem innritast hefur í skólann.
Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þau viðmið sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt kvarða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS)  hefur gefið út. Nánar er hægt að lesa um innritunarviðmið hér.
Þá var horft sérstaklega til jöfnun kynjahlutfalls meðal nýnema og þess gætt að hlutfall hvers kyns færi ekki yfir 60% innritaðra nemenda. Einnig var horft til þeirra umsækjenda sem ekki eru með íslensku sem móðurmál en í þeirra tilvikum var vægi íslenskueinkunnar einfalt en ekki tvöfalt vægi.
Hæsti stigafjöldi sem hægt er að fá samkvæmt reiknireglu er 24 stig eða A í öllum greinum sem horft er til. 76 umsækjendur voru með A í öllu eða 20 % innritaðra.  350 umsækjendur voru með 23 stig eða hærra og fengu þeir allir umsókn sína samþykkta, annaðhvort brautarval 1 eða brautarval 2.  Hlutfall innritaðra með 23 stig eða hærra er 90% en í fyrra var þetta hlutfall 73%.
22 umsækjendur með 22,75 stig fengu umsókn sína samþykkta í brautarval 1 eða brautarval 2.         16 umsækjendur með 22,5 stig (B+ í öllum greinum) fengu umsókn sína samþykkta í brautarval 1 eða brautarval 2.
Skipting milli brauta er að einn bekkur verður á félagsvísinda- og alþjóðabraut og einn bekkur á nýsköpunar- og listabraut. Sex bekkir á náttúrufræðibraut, fjórir þeirra á líffræðilínu og tveir á eðlisfræðilínu. Sex bekkir á viðskiptabraut; þrír á hagfræðilínu, einn á stafrænni viðskiptalínu og tveir á viðskiptalínu.
Nemendur voru teknir inn á brautir og línur og er þeim raðað í bekki út frá þeim forsendum.  Öll sæti í öllum bekkjum eru fullskipuð og því er ekki hægt að taka á móti óskum nýnema um að skipta um braut, línu eða bekk.
Ef einhver afþakkar pláss verður skoðað í haust hvort tekinn verði inn nýr nemandi. Nemendur sem fengu ekki umsókn sína samþykkta við skólann geta óskað eftir því að fara á biðlista ef pláss losnar. Skráning á biðlista fer fram í gegnum netfangið verslo@verslo.is
Starfsfólk Verzlunarskólans hlakkar til að taka á móti nýjum nemendum á nýnemakynningu skólans, mánudaginn 18. ágúst. Nánari upplýsingar um tímasetningu koma hingað inn á síðuna í byrjun ágúst.
Bestu óskir um gleðilegt sumar!

Aðrar fréttir