19.06.2026 Lok innritunar 2026 Innritun í Verzlunarskólann fyrir komandi skólaár er lokið. Alls bárust 794 umsóknir og þar af 545 sem voru með Verzlunarskólann sem 1. val. Alls munu 386 nemendur innritast inn á fyrsta námsár og eru þeir frá 61 grunnskóla víðs vegar af landinu. Þessi hópur nýnema er jafn stór og sá sem innritaðist fyrir ári síðan. Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þau viðmið sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt þeim kvarða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur gefið út. Nánar er hægt að lesa um innritunarviðmiðin hér. Þá er horft sérstaklega til jöfnun kynjahlutfalls meðal nýnema í innritun og þess gætt að hlutfall eins kyns fari ekki yfir 60% innritaðra nemenda. Við úrvinnslu umsókna í ár þurfti ekki að beita neinum tilfæringum til að ná markmiðum skólans um kynjahlutföll, sem er mjög jákvætt. Við úrvinnslu umsókna er einnig horft til þeirra umsækjenda sem ekki eru með íslensku sem móðurmál en í þeirra tilvikum var vægi íslenskueinkunnar einfalt en ekki tvöfalt. Hæsti stigafjöldi sem hægt er að fá samkvæmt reiknireglu er 24 stig eða A í öllum greinum sem horft er til. 63 umsækjendur voru með A í öllu eða 16 % innritaðra. 353 umsækjendur voru með 22,75 stig eða hærra og fengu þeir allir umsókn sína samþykkta, annaðhvort brautarval 1 eða brautarval 2. Hlutfall innritaðra með 22,75 stig eða hærra er 92%. 33 umsækjendur með 22,5 stig (B+ í öllum greinum) fengu umsókn sína samþykkta í brautarval 1 eða brautarval 2. Því miður fengu ekki allir nemendur með 22,5 stig umsókn sína samþykkta og ekki heldur neinn umsækjandi með lægri stigafjölda. Inn á brautir raðast einn bekkur á félagsvísinda- og alþjóðabraut og einn bekkur á nýsköpunar- og listabraut. Sex bekkir á náttúrufræðibraut, þrír þeirra á líffræðilínu og þrír á eðlisfræðilínu. Sex bekkir á viðskiptabraut; þrír á hagfræðilínu, einn á stafrænni viðskiptalínu og tveir á viðskiptalínu. Nemendur sækja um á brautir og línur og er þeim raðað í bekki út frá þeim forsendum. Öll sæti í öllum bekkjum eru fullskipuð og því er ekki hægt að taka á móti óskum nýnema um að skipta um braut, línu eða bekk. Ef einhver afþakkar pláss verður skoðað í haust hvort tekinn verður inn nýr nemandi. Nemendur sem fengu ekki umsókn sína samþykkta við skólann geta óskað eftir því að fara á biðlista ef pláss losnar. Skráning á biðlista fer fram í gegnum netfangið verslo@verslo.is Starfsfólk Verzlunarskólans hlakkar til að taka á móti nýjum nemendum á nýnemakynningu skólans, þriðjudaginn 18. ágúst. Nánari upplýsingar um tímasetningu koma hingað inn á síðuna í byrjun ágúst. Bestu óskir um gleðilegt sumar!