07.10.2009 Lokafundur í RetAiL Verzlunarskóli Íslands hefur í tæp tvö ár stýrt Leonardo da Vinci verkefninu ‘Retail Management for Adults in Lifelong Learning – RetAiL’. Verkefninu lýkur um næstu áramót og þessa dagana er lokafundur verkefnisins haldinn hér í skólanum. RetAiL er fjarnámsefni í verslunarstjórnun, ætlað fólki 18 ára eða eldra sem unnið hefur í verslun í a.m.k. 2 ár. Námsefnið verður tilbúið í janúar 2010 og verður kennt í þeim skólum sem staðið hafa að samningu þess. Það eru auk Verzlunarskóla Íslands, North Highland College í Thurso, Skotlandi og TAMK – University of Applied Sciences í Tampere í Finnlandi. Heimasíða verkefnisins er http://leoretail.com