23.05.2026 Metfjöldi brautskráður frá Verzlunarskóla Íslands Mikil hátíðarstemning ríkti í Borgarleikhúsinu þegar Verzlunarskóli Íslands brautskráði stærsta útskriftarárgang í sögu skólans. Alls útskrifuðust 358 nemendur með stúdentspróf að loknu þriggja ára námi og markaði athöfnin jafnframt lok 121. starfsárs skólans. Vegna fjölda útskriftarnema voru athafnir dagsins tvær. GunnInga skólastjóri ávarpaði gesti og nýstúdenta með hlýlegri og einlægri ræðu og rifjaði upp sögu skólans sem fagnaði 120 ára afmæli sínu síðastliðið haust. Þá lagði hún áherslu á að saga Verzlunarskólans væri fyrst og fremst saga nemendanna sjálfra og þeirra fjölmörgu sem hafa útskrifast þaðan í gegnum tíðina. Í ávarpi skólastjóra kom fram að nú tæki við nýr kafli í lífi stúdentanna, þar sem sumir héldu áfram námi, aðrir færu út á vinnumarkaðinn og enn aðrir héldu út í heim. Þá var árganginum hrósað fyrir öflugt félagslíf og góðan skólabrag, en nemendur hafa skapað sterkt samfélag þar sem fjölbreytt áhugasvið og ólíkir karakterar hafa fengið að njóta sín. Að vanda var úthlutað úr VÍ 100 sjóðnum en hann var stofnaður í tilefni af 100 ára afmæli skólans. Fyrrverandi nemendur skólans lögðu fé í sjóðinn og í skipulagsskrá hans segir m.a. að árlega skuli hann styrkja valda nemendur með fjárframlagi, þegar þeir flytjast milli bekkja eða ljúka stúdentsprófi. Skal við það miðað að styrkþegar hafi sýnt afburða námsárangur eða lagt verulega af mörkum til skólastarfsins á annan hátt. Dúx skólans var Arna Brá Birgisdóttir í 3-X, með I. ágætiseinkunn; 9,9. Hlaut hún bókagjöf og námsstyrk. Semidúxinn var Vilhjálmur Geir Geirsson í 3-Y, með I. ágætiseinkunn; 9,88 og hlaut hann bókagjöf og námsstyrk. Nemendur með 9,3 og hærra fengu einnig bókagjafir og námsstyrk og voru það eftirfarandi nemendur: Nafn Einkunn Andrea Erla Guðmarsdóttir 3-X 9,87 Karen Lea Jensdóttir 3-U 9,46 Birgitta Rún Yngvadóttir 3-I 9,41 Kristín Rut Blöndal 3-Y 9,38 Ísabella Eiríksdóttir Hjaltested 3-U 9,32 Sveinn Geirsson 3-R 9,31 Emma Habibsdóttir Lobbad 3-R 9,3 Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir bestan námsárangur að loknu 1. og 2. ári og voru það eftirfarandi nemendur: Hildur Óskarsdóttir 1-B einkunn 9,9 Anna Barbara Tómasdóttir 2-U, einkunn 9,83 Skólinn óskar öllum brautskráðum nemendum skólans innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni. Fleiri myndir væntanlegar á næstu dögum.