06.05.2026 Myndir frá Peysufatadeginum Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur mánudaginn 4. maí. Athöfnin hófst í Bláa sal með skemmtilegri dagskrá. Að henni lokinni var boðið upp á hressingu á Marmaranum áður en hópurinn hélt af stað í rútum að Hallgrímskirkju. Þaðan var gengið saman niður á Ingólfstorg þar sem nemendur dönsuðu við harmonikku undirleik. Kvöldið endaði á skemmtilegu balli þar sem gleðin hélt áfram langt fram á kvöld.