15.02.2023 Nemendur gistu í nemendakjallaranum Í síðustu viku fór árleg góðgerðarvika fram þar sem fé var safnað til styrktar börnum í Úkraínu. Nemendur lögðu ýmislegt á sig til að leggja málefninu lið og framkvæmdu ýmiskonar áskoranir og margir hverjir fóru út fyrir þægindarammann. Til að mynda gistu nokkrir drengir á þriðja ári alla vikuna í nemendakjallara skólans. Þá komu tveir nemendur sér fyrir í Matbúð þar sem þeir unnu heilan skóladag við afgreiðslu og undirbúning á matnum. Stúlka á öðru ári var á hjólaskautum í heilan dag og þrjár aðrar stúlkur gengu alla leiðina í skólann frá Kjalarnesi, samtals 25 km. Tveir nemendur á þriðja ári fengu sér tattoo og einn nemandi litaði hárið á sér bleikt. Á Marmaranum var einnig happdrætti, lukkuhjól og sala á gómsætum veitingum. Söfnunin gekk vel og er enn í gangi en samtals hafa nú safnast kr. 819.241. Það er um að gera að styrkja þetta góða málefni með því að aura á @gvi eða leggja inn á reikning góðgerðarvikunnar kt. 441079-0609 reikningsnúmer: 0515-26-2591. Góðgerðarvikan í ár var í samstarfi við Bláa lónið og Cintamani. Starfsmenn skólans eru afar stoltir af þessu flotta verkefni nemenda.