Nemendur Verzlunarskólans hlutu verðlaun á spænskuhátíð

Þann 13. mars síðastliðinn var haldin spænskuhátíð í Háskóla Íslands í samstarfi við sendiráð Spánar á Íslandi, Háskóla Íslands og tvo spænska háskóla, Háskólann í Santiago de Compostela og Háskólann í Alcalá de Henares.

Í tengslum við hátíðina var efnt til samkeppni í gerð myndbanda og veggspjalda á spænsku. Þema keppninnar var 14. grein heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Líf í vatni og tóku nemendur í framhaldsskólum á Íslandi þátt.

Fjórir nemendur úr Verzlunarskóla Íslands stóðu sig sérstaklega vel og hlutu verðlaun fyrir myndband sitt El discurso (Ræðan). Þeir eru Arnór Snær Hauksson (1-X), Eysteinn Daði Hjaltason (1-X), Mikael Bjarki Heiðarsson (1-X) og Vilhjálmur Árni Sigurðsson (2-X).

Verðlaunin eru viku langt spænskunámskeið við Háskólann í Santiago de Compostela á Spáni, ásamt gistingu og uppihaldi.

¡Felicidades a todos los estudiantes premiados!

Aðrar fréttir