Nemó

Nemendamótsdagur NFVÍ verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 3. mars. Í ár setur nemendamótsnefnd upp sýninguna Mamma Mia! Here VÍ go again í íþróttasal skólans. Helmingur nemenda skólans fer á sýninguna á miðvikudeginum eftir skóla. Á fimmtudeginum er engin kennsla og verða þá tvær sýningar að deginum til fyrir þá sem ekki fóru á miðvikudagssýningu. Hefðin er að bekkir hittast á fimmtudeginum og gera sér glaðan dag. Þeir fara t.d. saman í brunch, keilu, sund eða aðra skemmtilega afþreyingu. Um kvöldið hittast svo bekkirnir í heimahúsum, borða saman og fara á ballið sem haldið verður í Kaplakrika.

Á föstudeginum er engin kennsla og nemendur í fríi.

""

Aðrar fréttir