Norður-Atlantshafsbekkurinn (NGK)

 Frá og með skólaárinu 2019-2020 gefst nokkrum íslenskum nemendum, sem eru að ljúka grunnskóla, kostur á nýjung í námsframboði á framhaldsskólastigi. Fjórir framhaldsskólar, þ.e. Gribskov Gymnasium í Danmörku, GUX Sisimiut á Grænlandi, Miðnám á Kambsdali í Færeyjum og Verzlunarskóli Íslands, hafa ákveðið að standa saman að tilraunaverkefni sem felur í sér að stofna einn framhaldsskólabekk þar sem koma um 7 nemendur frá hverju landi fyrir sig. Nemendurnir munu stunda nám við alla þessa skóla. Fyrst í Danmörku síðan í Færeyjum og svo Íslandi og enda svo á Grænlandi. Námsframboð og kennsla er samkvæmt danskri námskrá og stúdentsprófið verður eins og frá dönskum framhaldsskóla. Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu skólans og einnig er hægt að senda fyrirspurn á verslo@verslo.is. Umsóknarfrestur er til loka febrúar 2019.

Aðrar fréttir