Nýnemaball

Nemendafélagið stendur fyrir nýnemaballi fimmtudaginn 18. september. Ballið fer fram í Víkinni og stendur frá klukkan 21:00-01:00. Joey Christ, Aron Kristinn og Gross eru meðal listamanna sem munu halda uppi stuðinu á ballinu.

Til að forðast troðning við innganginn er mæting skv. eftirfarandi tímatöflu:

1. ár mætir kl. 21:20 og blæs í áfengismæli
2. ár mætir kl. 21:40
3. ár mætir kl. 22:00

Edrúpotturinn verður á sínum stað og eru allir nemendur hvattir til að blása í áfengismæla. Veglegir vinningar eru í edrúpottinum á þessari fyrstu stóru skemmtun nemendafélagsins. Það er skólinn og foreldrafélagið sem gefa vinninga í pottinn.

Við hvetjum forráðamenn til að sækja sína krakka að loknu balli.

Að lokum er rétt að minna á að föstudaginn eftir ballið fellur niður fyrsti tími. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 9:35.

Aðrar fréttir