11.04.2011 Peysufatadagur Þann 14. apríl munu nemendur 4. bekkjar Verzlunarskóla Íslands, halda Peysufatadaginn hátíðlegan. Dagskráin hefst í Bláa sal klukkan 10, að henni lokinni verður gengið niður Laugaveginn að Ingólfstorgi. Þar verður dansað við harmónikkuleik. Snæddur verður hádegisverður í Perlunni og dagskránni lýkur með dansleik um kvöldið. Óskar skólinn nemendum til hamingju með daginn. Dagskrá Peysufatadagsins 08:50 Skemmtun í Bláa sal 10:00 Morgunmatur á Marmara 11:30 Rútur niður á Hlemm 12:00 Gengið niður Laugaveginn 12:30 Dansað á Ingólfstorgi 13:15 Gengið að Háskóla Íslands þar sem tekin verður hópmynd 14:00 Rútur í Perluna 14:15 Matur í Perlunni 16:00 Rútur að Verzlunarskóla Íslands