Peysufatadagurinn 2024

Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur í dag.

Eftir skemmtilega dagskrá í Bláa sal skólans var haldið í rútu niður í miðbæ þar sem nemendur stigu dans á Ingólfstorgi. Nemendur létu ekki smá rigningu stoppa sig og eftir dansinn fóru nemendur í hópmyndatöku við Háskóla Íslands og enduðu svo á hádegisverði í Gullhömrum. Dagskránni lýkur með dansleik í kvöld.

Aðrar fréttir