Peysufatadagurinn

Í dag er peysufatadagur 2. árs nema.  Dagurinn hefst á dagskrá í skólanum en síðan fara nemendur í rútum að Hallgrímskirkju og þaðan ganga þau niður á Ingólfstorg þar sem dansað verður. Gert er ráð fyrir þeim hjá Hallgrímskirkju klukkan 12:00 og áætlað er að dansinn verði stiginn á Ingólfstorgi klukkan 12:20. Snæddur verður hádegisverður í Gullhömrum og dagskránni lýkur með balli um kvöldið.

Við hvetjum forráðamenn til að gera sér ferð á Ingólfstorg og fylgjast með þeim þegar þau stíga dansinn á Ingólfstorgi.

9:00   – mæting í Verzló

9:30  – athöfn hefst í skólanum

11:30 – rútur keyra hópinn frá Verzló að Hallgrímskirkju

12:00 – hópurinn gengur frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg að Ingólfstorgi

12:20 – dansað á Ingólfstorgi

12:40 – hópurinn gengur frá Ingólfstorgi að Háskóla Íslands þar sem myndataka fer fram

13:20 – rútur frá HÍ í Gullhamra þar sem hópurinn fer í hádegismat

16:00 – rútur frá Gullhömrum í Verzló

Aðrar fréttir