Quidditch mót Harry Potter valsins

Miðvikudaginn 11. nóvember fer fram hið árlega Quidditch mót Harry Potter valsins. Mótið fer fram í fundarhléi og eru allir velkomnir sem áhorfendur, kennarar og nemendur og gefst hér tækifæri til að styðja sína vist af kappi, en keppnin um húsbikarinn er hörð, með sigri gæti Hufflepuff tryggt sér bikarinn, ef sigurinn fer annað er allt opið í því sambandi! Jafnframt er þetta áhugaverð íþróttagrein til að kynna sér en spilað er samkvæmt Versló útgáfu af Quadball reglum, en almennar reglur um þessa merku íþrótt má kynna sér hér. Hið mikilvæga hlutverk gullnu eldingarinnar er í höndum Daða Pálssonar, dómari í keppninni er Ármann Halldórsson, en Rebekka Árnadóttir mun leiða lið nákvæmra og agaðra línuvarða. Myndin sýnir sigurlið Slytherin frá árinu 2025.

Aðrar fréttir