Samkennd og sjálfræði

Nemendur á fyrsta ári hófu í dag vinnu við þróunarverkefnið Samkennd og sjálfræði. Í verkefninu stíga þau út fyrir veggi skólans og láta gott af sér leiða í samfélaginu.
Verkefnið felur í sér sjálfboðavinnu eða skipulagningu viðburða með það að leiðarljósi að sýna samkennd í verki. Nemendur fá svigrúm til að móta eigin hugmyndir og bera ábyrgð á að hrinda þeim í framkvæmd.
Framundan er spennandi ferli þar sem hugmyndir nemenda fá að þróast og verða að verkefnum sem skilja eftir sig spor í samfélaginu.

Aðrar fréttir