17.04.2026 Sigurvegarar Gettu betur tóku á móti veglegri bókagjöf Sigurvegarar Gettu betur tóku nýverið á móti veglegri bókagjöf frá Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða 31 bók um kirkjur Íslands. Bókunum hefur verið stillt upp á bókasafni skólans ásamt Gettu betur-bikarnum og eru allir velkomnir að koma og kíkja á bækurnar.