Skólabyrjun og bóksala

Skólasetning Verzlunarskóla Íslands verður með breyttu sniði í ár. Athöfnin er einungis ætluð nýnemum og hefst hún klukkan 10:00  fimmtudaginn 17. ágúst í hátíðarsal skólans (Bláa sal).

Vegna mikillar aðsóknar er mikilvægt að nýnemar mæti, að öðrum kosti geta þeir átt á hættu að verða af skólavist. Nýnemar fá sérstaka kynningu á skólanum sem varir til klukkan 15:00.

Eldri bekkingar mæta skv. stundaskrá föstudaginn 18. ágúst.

Allir nemendur er hvattir til þess að ganga sem fyrst frá kaupum á námsbókum. Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram í fundarherbergi á 3. hæð.

Bókalistann fyrir veturinn má finna undir flipanum „Námið“ en einnig er flýtivísun hér .

Bóksalan verður opin á eftirfarandi tímum: 

Fimmtudagur 17. ágúst 14:00 – 17:00 
Föstudagur 18. ágúst  08:00 – 13:00
Mánudagur 21. ágúst  08:00 – 13:00

Aðrar fréttir