08.09.2016 Smásagnakeppni KÍ Kennarasamband Íslands og Heimili og skóli efna til smásagnasamkeppni meðal nemenda á öllum skólastigum í tilefni Alþjóðadags kennara 5. október.Þema smásagnakeppninnar er „kennarinn minn“. Keppendum er skipt í fimm flokka, þeir eru þessir:• Leikskólinn• Grunnskólinn – 1. til 4. bekkur• Grunnskólinn – 5. til 7. bekkur• Grunnskólinn – 8. til 10. bekkur• Framhaldsskólinn Handrit skal senda á netfangið smasaga@ki.is. Sagan má ekki hafa birst opinberlega og ekki vera lengri en 3.000 orð. Nafnleynd verður viðhöfð gagnvart dómnefnd og því vert að gæta þess að nafn höfundar komi ekki fram í sjálfu handritinu heldur einvörðungu fylgiskjölum. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir fimm bestu sögurnar við hátíðlega athöfn á Alþjóðadegi kennara. Verðlaunasögurnar verða birtar í miðlum Kennarasambandsins. Skilafrestur smásögu er 16. september.