07.10.2026 Spænskunemendur heimsóttu Katalóníu hérað á Spáni Vikuna 15. – 22. september fóru tíu nemendur í spænsku á 2. ári í heimókn til skólans Institut Ramon de la Torre sem er staðsettur í bænum Torredembarra í Katalóníu. Ferðin var styrkt af Erasmus+ og var markmið ferðarinnar að hitta aftur spænsku nemendurna sem komu í heimsókn í vor, kynnast spænskri menningu og tungumáli. Nemendurnir dvöldu heima hjá spænskum fjölskyldum og vörðu dögunum í að kynnast Spáni á sem fjölbreyttasta hátt. Í skólaheimsókninni héldu íslensku nemendurnir kynningar á spænsku þar sem þeir kynntu Verzlunarskólann, íslenskan mat, landið okkar og menningu. Einnig heimsóttu þau munnkaklaustrið Montserrat sem er í fjöllunum rétt fyrir utan Barcelona, ásamt því að skoða bæinn Montblanc og upplifa bæjarhátðina Santa Tecla sem var í Tarragona. Veðrið lék við hópinn og náðu þau að skoða rómverskar rústir í sólinni og læra að sigla á kayak og paddle í sjónum á ströndinni við Torredembarra. Ferðin var mjög skemmtileg og áhugverð fyrir nemendur, þau hittu aftur spænsku félagana sína, kynntust spænskum menntaskóla, lærðu um sögu og menningu Spánar ásamt því að æfa sig að tala og læra meiri spænsku. Eftirfarandi nemendur tóku þátt í verkefninu: Anna Bryndís Andrésdóttir 2-R Fróði Þrastarson 2-J Guðjón Atli Sævarsson 2-R Hildur Óskarsdóttir 2-B Ísabella Ósk Benediktsdóttir 2-T Karlotta Ósk Þorsteinsdóttir 2-S Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 2-B Margrét Sigurðardóttir 2-S Snorri Snær Hallgrímsson 2-R Vera Vigdís Bergs 2-B Verkefnið er styrkt af Erasmus+ áætluninni.