Starfsmaður í mötuneyti

Verzlunarskóli Íslands leitar að starfsmanni í mötuneyti skólans.

Um er að ræða 100% starf í mötuneyti skólans sem þjónar bæði nemendum og starfsmönnum.

Umsækjendur þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikum. Matartækninám æskilegt eða starfsreynsla í mötuneyti.

Við bjóðum:

  • Góða vinnuaðstöðu.
  • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri.

Umsóknarfrestur er til 15. janúar og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is

Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1140 nemendur. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.

Aðrar fréttir