09.11.2026 Stjórnmálafræðinemendur heimsóttu Washington DC Dagana 17. til 23. október fór fríður flokkur stjórnmálafræðinemenda á þriðja ári í hina árlegu námsferð til höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington DC. Að vanda skartaði Washingtonborg sínu fegursta á þessum ljúfu haustdögum, sól skein í heiði alla daga og hitastigið hélt sér um 20 gráður og gott ef UV fór ekki upp í 5 flesta dagana. Hópurinn skoðaði að vanda margt og mikið. Helstu stjórnarstofnanir og minnismerki í miðborginni voru heimsótt, litið var við í þjóðargrafreitinn í Arlington og þá voru einnig nokkur af helstu söfnum borgarinnar heimsótt. Þá fékk hópurinn heimboð í íslenska sendiherrabústaðinn þar sem Svanhildur Hólm Valsdóttir ásamt nokkrum starfsmönnum sendiráðsins kynnti starfsemi utanríkisþjónustunnar og sagði frá samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Einnig var haldið í heimsókn í skrifstofur Kerecis þar sem Dr. Gunnar Jóhannsson tók á móti hópnum og kynnti starfsemi fyrirtækisins. Skemmst er frá því að segja að ferðin gekk í alla staði vel og voru nemendur sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.