15.07.2024 Sumarlokun Nú líður senn að sumarlokun skrifstofu Verzlunarskólans. Endurtektarprófum er lokið og nemendur hafa fengið einkunn birta á INNU. Þeir nemendur sem ekki náðu markmiðum sínum í endurtektarprófunum eða gátu ekki þreytt endurtektarpróf hafa tækifæri til að ljúka áföngum vetrarins í fjarnámi skólans í sumar en sumarönn er þegar hafin. Á vefsíðu skólans er hægt að nálgast próftöflu sumarannar. Þá viljum við benda á að Verzlunarskólinn er bekkjarskóli og nemendur fylgjast að í námi við skólann. Því er ekki heimilt að nemendur taki einstaka áfanga í fjarnámi á sumrin sem eru skilgreindir á braut viðkomandi nemanda til að fækka áföngum á komandi skólaári. Við minnum einnig á 5. kafla í skólareglum skólans hvað varðar námsmat og þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að færast upp á næsta ár. Kennsla haustannar hefst þriðjudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu. Nýnemar koma í skólann mánudaginn 19. ágúst og fá kynningu á skólanum. Skóladagatal næsta skólaárs er aðgengilegt hér á síðunni. Við biðjum forráðamenn að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi ekki áhrif á mætingu þeirra í skólann. Stundatöflur verða aðgengilegar á INNU í byrjun ágúst. Lokað hefur verið fyrir umsóknir nýnema í Versló á haustönn 2024. Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar á menntagáttinni, www.menntagatt.is. Allir nýnemar fá að vita niðurstöðu innritunar á sama tíma, þ.e. seinnipart júní. Ef einhverjar spurningar vakna má senda póst á verslo@verslo.is. Greiðsluseðlar vegna skólagjalda verða sendir út í lok júní. Ef nemendur sem eru að færast á milli ára fá ekki greiðsluseðla getur það verið vegna ólokinna áfanga sem þarf að ljúka til að fara upp á næsta ár. Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 17. júní og opnar aftur 7. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, verslo@verslo.is, sem vaktað er í sumar. Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðamönnum þeirra gleðilegs sumars.