14.04.2026 Umhverfisdagur Verzlunarskóla Íslands 15. apríl Árlegur umhverfisdagur Verzlunarskóla Íslands fer fram næstkomandi miðvikudag, 15. apríl. Markmið dagsins er að vekja athygli á mikilvægi umhverfisverndar og hvetja nemendur til að leggja sitt af mörkum til betra nærumhverfis. Á milli klukkan 9:35 og 10:25 munu nemendur taka þátt í hreinsun og tiltekt á skólalóðinni. Að loknum skóladegi munu þeir einnig ganga vel frá kennslustofum sínum. Í ár eru tvö meginþemu umhverfisdagsins: „Neysla og hringrásarhagkerfið“ og „Loftslagsbreytingar og samgöngur“. Umhverfisnefnd skólans hefur sérstaklega beint sjónum að samgöngumálum og meðal annars framkvæmt könnun á ferðavenjum nemenda. Niðurstöður hennar eru kynntar á veggspjöldum á Marmaranum. Í framhaldi af því hefur verið komið upp aðstöðu á skólalóðinni í samstarfi við Hopp, sem gefur nemendum enn betra tækifæri til að nýta vistvænar samgönguleiðir. Saman getum við búið til enn betra umhverfi til að vera í.